Kvöldmaturinn.
Var í stuði fyrir góðan mat :)
Steinbítur með Basil og Lime.
Búið að krydda hann fékk hjá Hafið Fiskverslun
Elska þessa fiskbúð :)
Bæði varan og þjónustan til fyrirmyndar.
Síðan skellti ég fiskinum í eldfast form.
Skar ofan í Gulrætur-Rauða papriku-Vorlauk-Epli-Mango
Aðeins af salti yfir.
Fiskurinn okkar á Íslandi er svo frábær matur.
Og um að gera prufa fleiri fisktegundir.
Borðað með Rocola-Tómatur-Jarðaber
Niðurskornum sætum kartöflum sem ég kryddaði með salt og pipar og örlítið af olíu yfir.
Bakað í ofni.
Þetta var sjúklega gott og einfalt.