Góðan daginn.
Sveitasælan er í hámarki núna.
Sultuslök eins og fáninn fyrir utan bústaðinn sem hangir eins og lufsa þarna og gerir lítið :)
Fórum í svo langa göngu í gær um Skagafjörðinn í leit af bláberjum.
Fundum líka svona flott útblásin og fullþroskuð bláber.
En það er ekkert auðvelt að fara í Berjamó :)
Hoppa um allt, klífa, leita, príla og koma sér í smá sjálfheldu.
Þetta er allt saman hin prýðilegasta æfing ..... því ég er með harðsperrur í dag.
Og fullan ísskáp af bláberjum.
Sem fer svo í frysti við heimkomu.
Gott tímakaupið við þessar æfingar.
Annars var ég að huga hvað ætli margir séu núna á leiðinni í MEGRUN, ÁTAK, HREINSUN ??
Því það er komið haust og nú skal losa um spikið og óhollustuna.
En að sleppa svona trikkum og fara bara í þetta einfalda
hreint mataræði og borða mat.
Virkilega breyta til ég hef ekki á móti því að fólk breyti til í mataræðinu.
En þú þarft ekki að svelta þig til að losa um kíló.
Þarft ekki að slíta alla vöðva og vakna grenjandi eftir einhvern átakstíma sem var nokkrum númerum of stór fyrir þig.
Allt er best í hófi :)
Og að finna milliveginn og njóta það er málið.
Hvað er hreinn matur ??
Spáðu aðeins í það .
Þar finnur þú nefnilega næstum öll svörin í átt að betri líkama.
Betri líðan og sáttari þú.
Sjá þetta litla krútt sem heldur í hendina á þreyttu mömmu sinni.
Og svo í dag orðin svona stór og mamma umvefur af ást ... elska þennan litla karl meira en allt <3
En það er ekki þreytt mamma þarna á ferð.
Heldur mamma sem getur stokkið um móa, farið í göngur og notið lífsins lifandi með fjölskykdunni sinni.
það er heila málið.
Njóta.
Eigið góðan dag.
Mínn er í brakandi blíðu norður í Skagafirði.
Þar ætla ég að njóta dagsins í dag og fara svo til hennar Reykjavíkur á morgun.
Sveitin hefur gert mig betri eftir aðeins vikudvöl .
Búin að hafa nógan tíma í að spá og spekúlera í þessu öllu.