Næringarráðgjafar og þjálfarar ráðleggja ekki bara fólki að borða hollt og hreyfa sig, heldur eru þeir mjög góðir í að fá fólk til að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl í hina daglegu rútínu.
Þegar það kemur að því að lifa heilbrigðu lífi þá snýst það ekki bara um að drekka grænkáls smoothie og svitna í ræktinni í klukkutíma.
Að lifa heilbrigðu lífi getur þýtt eitt fyrir þig og annað fyrir nágranna þinn, en sumt er hægt að venja sig á til að ná sem bestu jafnvægi í lífinu, sama hver markmiðin þín eru.
Vatn er virkilega þinn besti vinur. Drekktu fullt glas á fastandi maga á hverjum morgni. Það skiptir líkamann miklu máli að hugað sé að því að vökva hann reglulega yfir daginn. Einnig getur vatnsdrykkjan komin í veg fyrir að þú sért sífellt að narta í eitthvað óhollt.
Það er einfaldara að segja þetta en gera. En að borða í ró og næði er eitthvað sem þarf að vinna að. Æfingin skapar meistarann. Prufaðu næst þegar það er kvöldmatur, enginn sími, tölva eða sjónvarp. Með þessu þá ertu meira var um það hvað þú ert að borða og hversu mikið þú borðar og tekur eftir því þegar maginn er fullur því þá á að leggja frá sér hnífapörin. (mindful eating).
Farðu út að ganga reglulega því það er svo gott fyrir geðheilsuna. Ef þú situr inni allan daginn í vinnu þá skaltu nota hádegið í stuttan göngutúr og fylla lungun af fersku lofti. Með þessu fyllir þú líkamann af orku og ert mun jákvæðari fyrir vikið.
Reyndu að taka frá tíma á hverjum degi til að hreyfa þig eitthvað. Hvort sem það er að fara út að ganga eða hlaupa, nú eða í ræktina þá er þessi tími mikilvægur fyrir þig. Það er gott að fá útrás og svitna en passaðu bara að hafa hreyfinguna fjölbreytta.
Reyndu að borða a.m.k. fimm grænmeti og 3 ávexti daglega. Hafðu þetta sem litríkast, gulur, rauður, grænn og fjólublár. Oft er auðveldara að komast yfir næginlegt magn af grænmeti og ávöxtum ef það er undirbúið kvöldinu áður og komið fyrir í merktum plastboxum í ísskápnum.
Já það má. Dökkt súkkulaði er bráðhollt í hæfilegu magni. Mælt er með 85% dökku súkkulaði því það er lægra í sykri en annað súkkulaði. Fitan í dökku súkkulaði er líka mjög góður orkugjafi og svo það sé nú aðeins minnst á andoxunarefnin í alvöru dökku súkkulaði. Passaðu uppá að þú sért að borða alvöru dökkt súkkulaði (85% cocoa).
Best er að reyna að ná hinum umtöluðu 8 tímum en oft þá hentar það bara ekki öllum. 6-7 tímar eru oft nægur svefn fyrir fullorðin einstakling. Mundu að hafa svefnherbergið fullt af fersku lofti, alveg myrkvað, ekkert sjónvarp, engann síma né tölvu. Þessir rafmagnshlutir trufla svefninn og gera það að verkum að það er ekki svarta myrkur í svefnherberginu. Ef ljóstýra truflar framleiðslu melatóníns yfir nóttina þá sefur þú alls ekki vel.
Þó þú sért ekki mikið fyrir hugleiðslu þá er afar gott að minna sig reglulega á það sem þú ert þakklát/ur fyrir. Það er mjög gott að gera þetta þegar þú vaknar og ert ennþá upp í rúmi. Reyndu að finna þrjá hluti, atvik eða manneskjur daglega sem þú ert þakklát/ur fyrir.
Heimild: self.com