Beint samband er á milli hugsana og hvernig okkur líður. Það er hægt að hafa áhrif á eigin hugsanir og líðan með því að einbeita sér að því sem veldur vellíðan, hlutum sem tengjast góðum minningum, myndum sem gleðja okkur og tónlist sem okkur finnst gott að hlusta á.
GEÐRÆKTARKASSI
Safnaðu hlutum í kassa sem vekja hjá þér gleði og góðar minningar og notaðu meðvitað til að láta þér líða vel.
Einstaklingsbundið er hvernig við bregðumst við álagi. Hins vegar er jafn mikilvægt að bregðast skjótt við andlegum og líkamlegum kvillum.
ÁLAG HEFUR ÁHRIF Á LÍÐAN
Álag þarf ekki að vera slæmt en við þurfum að geta tekist á við það á jákvæðan hátt. Breytingar á borð við sjúkdóma, ástvinamissi, sambandsslit, gelgjuskeið, flutninga og að byrja í skóla geta valdið álagi. Það sama á við um jákvæðar breytingar eins og frí, giftingu, barnsfæðingu og breytingar í vinnuumhverfi.
FORSENDUR FYRIR VELLÍÐAN ERU:
• Góð heilsa; andleg, líkamleg og félagsleg
• Meðvitund um það sem getur haft slæm áhrif á heilsuna
• Að þekkja ráð við því sem ógnar heilsu
• Góð sjálfsmynd - að vera sátt/ur við sjálfa/n sig, þekkja kosti sína og galla
• Að geta tekist á við vandamál og erfiðleika á jákvæðan hátt
Við berum ábyrgð á eigin heilsu og eigin líðan. Ekki er þar með sagt að það sé okkur að kenna ef okkur líður illa. En það er á okkar ábyrgð að takast á við það sem veldur vanlíðan, með hjálp annarra ef við þurfum.
ÞAÐ SEM GETUR ÓGNAÐ EÐA STYRKT GEÐHEILSU ER TIL DÆMIS:
ÓGNAÐ
Streita
Áhyggjur
Kvíði
Ónógur svefn
Sorg
Einmanaleiki
Slæm sjálfsmynd
STYRKT
Slökun
Reglubundin
hreyfing
Áhugamál
Félagslíf
Vinátta
Sterk sjálfsmynd
VIÐBRÖGÐ VIÐ ÁLAGI
Hafa ber í huga að hóflegt álag getur verið hvetjandi en óhóflegt álag eða áföll geta verið skaðleg og jafnvel valdið:
GEÐRÆKT ER HEILSUEFLING
Með heilsueflingu beinir fólk sjónum að heilbrigði og hvernig megi styrkja eigin heilsu og annarra. Með geðrækt er lögð áhersla á að góð geðheilsa er mikilvægur þáttur í almennu heilsufari. Einstaklingsbundið er hvernig við bregðumst við álagi. Hins vegar er jafn mikilvægt að bregðast skjótt við andlegum og líkamlegum kvillum.
Vöðvabólgu
Bakverk
Langvinnum höfuðverkjum
Þunglyndi
Magasári
Hjartsláttartruflunum
Háþrýstingi
Kvíða
MERKI UM GEÐHEILSUVANDA
Eðlilegt er við ákveðnar aðstæður að finna fyrir depurð, reiði, sektarkennd, kvíða eða ótta. En þegar þessar tilfinningar vara lengi, án gildrar ástæðu, getur það verið merki um geðheilsuvanda sem bregðast þarf við.
1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara.
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um.
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir.
4. Lærðu af mistökum þínum.
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina.
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína.
10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.