Hvað ef ég gæti sagt þér að þú gætir losnað við kviðfituna, verið frískari og borðað sætan og syndsamlegan mat á sama tíma?
Eitthvað sem þú hefur áhuga fyrir? Þá er bréfið í dag eitthvað fyrir þig
Ég get sagt þér að þegar ég var að byrja mitt ferðalag að heilsu upplifði ég svo ótrúlega vel hvernig sykurinn var að spilla fyrir heilsunni hjá mér.
Ég var föst í vítahring sykurs og sykur var farin að hafa áhrif á liðamótin, svefninn, stuðlaði að orkuleysi, skapsveiflum, og auka kílóum!
Ég tók eftir því einn daginn að 80-90% þeirra kvenna sem höfðu lokið hjá mér þjálfun glímdu allar í upphafi við sykurlöngunina og var það að spilla fyrir árangri hjá þeim lengi vel.
En það var alltaf svo erfitt að sleppa sykri, því eins og þú veist þá er hann bara svo sætur og góður og það virðist sem konum og hjónum vantaði eitthvað sem þau gátu fengið sér í staðinn. Því mikið af nýjum heilsunýjungum eru ekkert endilega betri fyrir okkur.
Ekki bætir úr að lesa um að við Íslendingar erum alveg einstaklega sykruð þjóð og erum nú orðin einna hæst Norðurlanda-þjóðanna samkvæmt skýrslu Norrænu ráðherranefndar í bæði sykurneyslu og offitu! - arg!
Svo ég varð að gera eitthvað og þá kom til sykurlausa áskorunarinnar sem ég hélt í fyrsta sinn fyrir ári síðan!
Ég virkilega elska að sjá fólk umbreyta lífi sínu til hins betra og hef ég sérstakt lag á að gera sykurlausan mat alveg hrikalega bragðgóðan og það er eitthvað sem allir kunna að meta.
Ég veit það af reynslu að þú getur orðið sykurlaus og fundist það lítið mál, jafnvel þótt þú hefur prófað að sleppa sykri áður og gefist upp.
Þetta er nú í fjórða sinn sem ég held ókeypis sykurlausa áskorun og ég er svo ofboðslega stolt. Það eru tæplega 10.000 skráðir og tala fyrri þátttakendur um að ná að léttast um 3-5 kíló, auka orkuna verulega og finnast löngunin í sykur hverfa og þau hafa virkilega lítið fyrir matnum!
Það mikilvægasta, að mínu mati, er að þú sjáir að þetta er hægt og að þetta geti virkilega verið “syndsamlega gott” eins og ein orðaði það hjá okkur.
Við erum alltaf að sjá hvernig við getum bætt áskorunina og gert upplifun þína ennþá ánægjulegri.
Við höfum því hafið skemmtilegt samstarf við Nettó og Sollu grænu á Gló og erum að vinna að skemmtilegum hlutum baksviðs sem við tilkynnum í sykurlausu áskoruninni! (Eitthvað sem ég veit þú vilt hafa augun opin fyrir)
1. Þú færð tölvupóst 2x í viku á meðan áskorun stendur með innkaupalista og 5 syndsamlegum uppskriftum sem þú trúir varla að geta verið sykurlausar ásamt hvatningu og hollráð með skráningu hér
2. Þú færð stuðning minn, hvatning og snjöll sykurlaus ráð frá tölvupósti og á samfélagsmiðlum okkar eins og Instagram, Facebook og snapchat! (Nýtt! bættu lifdutilfulls á Snapchat hjá þér)
3. Sérstakan aðgang að sykurleysis facebook grúppu við skráningu hér
Ekkert bull þú getur þetta.
Ég verð með þér skref fyrir skref. Hoppaðu hér til að fara um borð á sykurlausu lestina og breyttu líkama þínum, líðan og Íslandi einn sykurlausan mola í einu!
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi