Fara í efni

Lagfæring á örum

Ör geta verið ljótt lýti á líkamanum svo ég tali nú ekki um á andlitinu. En það er hægt að lagfæra ör í flestum tilvikum.
Það er hægt að lagfæra ör í flestum tilvikum
Það er hægt að lagfæra ör í flestum tilvikum

Ör geta verið ljótt lýti á líkamanum svo ég tali nú ekki um á andlitinu. En það er hægt að lagfæra ör í flestum tilvikum.

Af hverju ætti að lagfæra ör?

Ör eftir slys, sjúkdóma eða aðgerðir eru stundum mikið lýti og há einstaklingnum mikið. Oft er hægt að lagfæra örin, þannig að þau verða minna áberandi en þau hverfa aldrei.

Tryggingastofnun tekur þátt í greiðslu vegna lagfæringa á öri.

Aðgerðin

Þegar ör er fjarlægt fer það eftir eðli, stærð og staðsetningu örsins hvernig það er gert. Stundum er hægt að skera gamla örið burtu, laga undirlagið og sauma saman á ný.  Stundum þarf að breyta legu örsins, gera svokallaða Z-plastik, eða nota aðlægan vef til að hjálpa til við að loka skurðinum sem myndast þegar örið er fjarlægt.

Fyrir aðgerð

Aðgerðina er lang oftast hægt að gera í staðdeyfingu og þarf þá sjúklingur ekki að vera fastandi. Mikilvægt er að fara í góða sturtu heima kvöldið fyrir aðgerð eða um morguninn, ekki nota krem, rakakrem né annað meik up.

Eftir aðgerð

Venjulega eru mjög litlir verkir eftir svona aðgerð en hugsanlega þarf að nota verkjalyf í 1-2 daga á eftir. Eins og eftir allar aðrar aðgerðir áttu að taka því rólega á eftir, til að minnka blæðingahættu og minnka bólgusvörun. Ef sárið bólgnar mikið, sárabarmar verða rauðir, hiti eða auknir verkir  - áttu að hafa samband strax.

Nota límbandsplástur

Til að ná sem bestum árangri og að örið verði minnst sýnilegt er mælt með að nota límbandsplástur á örið í allt að 6 mánuði. Það heitir Micropore framleitt af 3 M og fæst í apótekinu.

Grein fengin af heimasíðu Ágústs Birgissonar lýtalæknis