- Heilinn notar um ¼ af því súrefni sem líkaminn notar.
- Hjartað slær um 100.000 sinnum á dag, 36500000 sinnum á ári og yfir billjón sinnum ef þú lifir fram yfir þrítugt.
- Rauðu blóðkornin bera súrefnið um líkamann. Þau eru búin til inn í beinmergnum í beinunum okkar.
- Liturinn á húðinni okkar er ákveðinn af því hversu mikið litarefnið melanin líkaminn framleiðir.
- Lungun í fullorðinni manneskju hafa yfirborðsstærð á við 70 fermetra íbúð.
- Svefninn hefur stig sem kallað er REM svefn. REM svefn er um 25% af okkar svefntíma og þegar við náum honum að þá eru draumar okkar mjög raunverulegir.
- Flestir fullorðnir einstaklingar hafa 32 tennur.
- Minnsta beinið í líkamanum er í eyranu.
- Nef og eyru hætta aldrei að vaxa.
- Ungabörn blikka augunum ekki nema einu sinni til tvisvar á mínútu á meðan fullorðnir blikka augunum um 10 sinnum.
- Við erum öll með okkar eigin fingraför, það eru engin fingraför eins. Við höfum líka einstakt tungufar.
- Vinstri hliðin af líkamanum er stjórnað af hægri helmingi heilans og öfugt.
- Sýklalyf eru aðeins virk á bakteríur, sýklalyf virka ekki á vírusa.
- Það tekur líkamann um 12 klukkutíma að melta máltíð til fulls.
- Lyktarskynið er um 10.000 meira næmra en bragðskynið.
Heimildir: sciencekids.co.nz