Fara í efni

Öruggar æfingar eftir meðgöngu

Öll þjálfun þarf að vera örugg og sniðin að þörfum þess sem hana stundar.
Passa þarf að æfingar séu öruggar eftir meðgöngu
Passa þarf að æfingar séu öruggar eftir meðgöngu

Öll þjálfun þarf að vera örugg og sniðin að þörfum þess sem hana stundar.

Hversu góð sem líkamsþjálfun er fyrir líkamann þá þarf hún umfram allt að vera örugg og sniðin að þörfum þeirra sem hana stunda. Þetta á hvað best við um hreyfingu á meðgöngu og stuttu eftir barnsfæðingu.

Gott er að hefja fyrstu æfingar eftir barnsfæðingu ekki mikið áður en barnið hefur náð 6 - 8 vikna aldri. Stuttar og rólegar gönguferðir eru þó í lagi fyrir þann tíma í flestum tilfellum.

Mikilvægt er að móðirin hlusti á líkamann sinn og byrji skref frá skrefi á æfingunum. Stigvaxandi þjálfun er í fyrsta lagi mikilvæg til að líkaminn fái aðlögunartíma, þetta á sér í lagi við um mjaðmagrindina sem þarf tíma til að dragast saman. Önnur mikilvæg ástæða er sú að til að framleiðsla á brjóstamjólk sé stöðug og nægjanleg fyrir barnið má ekki gera erfiðar æfingar til að byrja með.

Nauðsynlegt er að vera í góðum brjóstahaldara til þess að koma í veg fyrir að brjóstin hreyfist of mikið á meðan á æfingum stendur.

Með þetta tvennt að leiðarljósi er líklegt að mjólkurframleiðslan haldist stöðug og nægjanleg. Fagmanneskjur mæla með því að mæður gefi börnum sínum að drekka áður en æfingin hefst þar sem þjálfun, sér ílagi þolþjálfun, getur haft áhrif á bragð mjólkurinnar. Það léttir líka á móðurinni, því það er ekki þægilegt að æfa með brjóstin full af mjólk!

Munið að allar æfingar er hægt að gera með barninu og í staðinn fyrir lóð er ávallt hægt að hafa barnið i höndunum. Það er bæði skemmtilegt og notaleg stund með barninu.

Æfingarnar eru mikilvægar og ekki má gleyma mikilvægustu æfingunum eftir fæðingu en það eru grindarbotnsæfingarnar.

Krisztina G. Agueda

Einkaþjálfari og íþróttaþjálfari

Hreyfiland