Ljósmynd: Eran Yerushalmi
Oft á dag býðst þér því tækifæri til að iðka sjálfsást og draga þar með sjálfkrafa úr höfnuninni – alltaf þegar þú setur ofan í þig nær- ingu. Auðvitað er allra best að draga úr neyslu á þeim mat sem ég vil helst kalla skemmdan (þann sem er mikið unninn og fullur af aukaefnum) en þér býðst kraftaverk ef þú velur að tileinka þér staðhæfinguna sem gerir alla næringu að ástarjátningu til líkamans:
„Þegar það fer ofan í mig, þá er það ást.“
Með því að auðsýna líkamanum traust og ást upplifir hann ekki lengur höfnun og viðnám. Með því að vera í þakklæti og athygli og telja blessanir þínar þá ertu í velsæld – og þannig eykst styrkur þinn og samhljómur. Þannig finnurðu fyrir velsældinni, sælunni í augnablikinu.