Í dag velurðu rými þar sem þú verður ekki fyrir ónæði. Sestu í þægilegan stól. Færðu tungubroddinn upp í efri góm með þeim ásetningi að tengjast hjartanu. Lestu byrjunartextann í þessum kafla. Sjáðu fyrir þér það sem textinn lýsir. Sjáðu fyrir þér manneskju sem er tengd við jörðina, sjálfa sig og alheiminn.
Leyfðu þinni innri tilvist að melta þínar hugmyndir um dyggðir, gildi, tilgang, sýn, markmið og framkvæmdaáætlun. Gefðu þér rými til að skilja muninn á þessum hugtökum – stattu með þér, ekki gefast upp, ekki rífa þig niður ef skilningurinn kemur ekki eins fljótt og þú vilt. Lítur þú upp til þín eða niður á þig?