Fara í efni

Að velja að velja ekki, til umhugsunar á föstudegi frá Guðna lífsráðgjafa

Hugleiðing á föstudegi~
Hugleiðing á föstudegi~

Slysið er afurð hugans – þú skapar það með því að velja að velja ekki. 

Ábyrgðin er afurð hjartans – þú skapar hana með því að velja að valda lífi þínu og taka fulla og óskoraða ábyrgð á allri þinni tilvist.

Þetta eru svik við okkur sjálf, við sjálft hjartað, þaðan sem skýrasta röddin hljómar. Hjartað hrópar eftir athygli þinni en hjá manneskju sem lifir út frá dýrslegum hvötum og forsendum skortdýrsins í sjálfsvorkunn og valdaleysi hefur söngur hjartans ekkert vægi og engan hljóm.
 
Hjá honum heyrist aðeins í suði hugans um meira, betra, seinna, áður, kannski, of og van og nei nei, ó og æ og á og alls ekki!

Veldu að valda þinni tilvist!