Rétt eins og verkstæði þúsundþjalasmiðsins, þangað sem hann mætir dag eftir dag með skýran tilgang og ást á fagi sínu. Rétt eins og sumar- bústaður fjölskyldunnar, þangað sem komið er til að upplifa annars konar rými en í daglegu lífi. Rétt eins og uppáhaldslautin í sveitinni, þangað sem þú ferð til að finna friðinn sem þú upp- lifir þegar þú tengist náttúrunni. Rétt eins og vinnustofa skáldsins, þangað sem það mætir dag eftir dag til að helga sig hinu ritaða orði.
Heitbindingin er að skapa hjartanu heilagt og fullt rými sem hefur sér stakan tilgang. Rétt eins og kirkja eða musteri, þangað sem komið hafa tugir þúsunda einstaklinga með kærleiksríkan tilgang í auðmýkt og lotningu.
Rými til að vera og leyfa stórfenglegum kraftaverkum að eiga sér stað. Rými fyrir allt sem er. Rými sem lýtur sérstökum lögmálum – rými með tilgang sem skilgreinir sláttinn, verkefnin, starfið, lífið.