Þreyttur maður er þreyttur af því að hann er þreytandi, hann hefur þreytt sig með markvissum aðgerðum, lélegri næringu og annarri vanrækslu.
Það er ekki hægt að koma of seint – einungis nógu seint til að valda óróa og viðnámi í samhengi við sína eigin heimild.
Það er alltaf orsök og afleiðing sem ekki verður komist framhjá – og þá heldurðu áfram að næra skortdýrið, þjóna herranum, skrímslinu sem þrífst á spennunni sem felst í vansældinni.
Það er ekki hægt að eyða peningum – þú getur aðeins varið þeim í vansæld eða velsæld. Þegar þú laðar að þér í ótta eða skorti þá verður útkoman meiri ótti og skortur.
Ást er eina meðalið - viljir þú reglu.