Flestir upplifa höfnun persónulega – þeir upplifa hana þannig að aðrir hafni þeim. En það er bara ekki hægt. Höfnunin liggur aðeins hjá okkur – hvergi annars staðar en í okkar eigin viðbrögðum og viðhorfum til eigin sjálfsmyndar.
Höfnunin getur ekki verið persónuleg; annað fólk getur ekki hafnað þér því að höfnunin getur ekki komið frá öðrum en þér, því upplifunin er öll þín.
Rétt eins og þú getur aldrei orðið reiður út í neinn nema þig. Þeir sem þú velur að vera reiður við eru staðgenglar sem þú notar til að viðhalda blekkingunni og vörninni; staðgenglar sem þú þarft að nota því að skortdýrið vill alltaf vera fórnarlamb og ekki beina reiði í eigin garð.
Þú berð alltaf fulla ábyrgð á þínum tilfinningum.
Þegar þú hafnar þér ekki þá getur enginn annar hafnað þér. Þegar þú þakkar fyrir hvert augnablik án þess að dæma það muntu heldur aldrei upplifa neina höfnun.