HVERS VEGNA HUGLEIÐSLA?
� Hugleiðsla virkjar vitund hjartans og ástand einingar
� Hugleiðsla verður vettvangur vitundar og umgjörð einingar og anda
� Hugleiðsla minnkar vægi hugans og dregur úr tvístrun og blekkingu
� Hugleiðsla dregur úr súrefnisnotkun um 10–20% og kallar fram hvíldarástand sem er dýpra en venjulegur svefn
� Hugleiðsla dregur úr mjólkursýrum sem einkenna stress og streitu
� Hugleiðsla dregur úr framleiðslu líkamans á kortísól, sem er oft kallað streituhormónið, en eykur framleiðslu á róandi hormónunum melatónín og serótónín
� Hugleiðsla dregur úr framleiðslu öldrunarhormóna
� Hugleiðsla dregur úr blóðþrýstingi
� Þeir sem stunda hugleiðslu reglulega og til lengri tíma eru í minni hættu á að fá hjartasjúkdóma
Við hættum aldrei að hugsa því að heilinn er dugleg og falleg vél sem tekur sér aldrei frí. En að tengja sjálfsmynd okkar og persónuleika við þessa vél leiðir til vansældar. Þannig verður skortdýrið til – þegar við trúum því að við séum hugsanir okkar.
Um leið og við hættum að dæma hugsanir okkar og látum af afstöðunni og viðhorfinu gagnvart þeim öðlumst við hreinan hug. Við aftengjum hugsanirnar frá tilfinningunum og í því ástandi er kyrrðina og friðinn að finna. Frumur alls líkamans andvarpa af feginleik þegar við hugleiðum, því þannig gefum við þeim hvíld og rými til að endurnýja sig og sendum þeim aukinn súrefnisforða.
Hugleiðsla á ekki að vera áraun. Hún á ekki að snúast um að rembast og reyna. Margir halda að hugleiðsla snúist um að slökkva á hugsunum sínum. Þeir sem gera það verða alltaf vonsviknir þegar þeir verða þess varir, í hugleiðslunni, að þeir eru farnir að hugsa aftur og enn einu sinni.
Þessu er þveröfugt farið. Við reynum ekki að slökkva á hugsunum okkar, en skiljum að þegar við hugleiðum í vitund erum við ekki í viðnámi gagnvart þeim heldur fylgjumst við einfaldlega með þeim án þess að dæma. Það hefur kyrrð og ró í för með sér – þar fer hvíldin fram. Í raun eigum við að fagna því augnabliki þegar við skynjum hugsanirnar að nýju, því að á því augnabliki erum við aftur mætt á svæðið – þá finnum við að við erum dottin inn í fjarveru og hugsanir og getum snúið aftur.
Við dæmum ekki brottförina heldur fögnum við endurkomunni í hvert einasta skipti, því að komin erum við máttug.