Fara í efni

Þriðjudagur og hugleiðing frá Guðna lífsráðgjafa

hugleiðing á þriðjudegi~
hugleiðing á þriðjudegi~

Það þarf vilja til að skapa rými fyrir ljósið í lífi sínu – ef þú rýkur út færðu ofbirtu í augun, jafnvel sólsting. Þá geturðu hrokkið aftur inn í múra fangelsisins.

Við erum svo vön myrkrinu, svo vön dempuðu og takmörkuðu ljósi, að við viljum auka þol okkar fyrir ljós. Framgangan er það tækifæri.

Framgangan verður aldrei markvissari en tjáning okkar – við opinberum okkur í orðavali, vitund, atferli. Við sýnum hversu verðug við erum.