Uns heitbundinn ertu – alltaf hikandi, tilbúinn að draga í land alltaf fálmandi.
Í öllum lögmálum frumkvæðis (og Sköpunarverksins) er einn æðri sannleik að finna – að hafa hann að engu kæfir óteljandi hugmyndir og stórkostlegar áætlanir:
Á því augnabliki sem þú heitbindur þig byrjar Forsjónin að hreyfast um leið.
Þá hendir fjöldi hjálplegra atvika sem aldrei hefðu orðið.
Stórstreymi atburða sprettur úr ákvörðuninni: Þér í hag rís upp fjöldi af óvæntum viðburðum, fundum og efnislegum þáttum sem enginn gat látið sig dreyma um að drægjust í þína átt.
Hvað sem þú vilt eða þig dreymir um að geta – leyfðu því að hefjast. Áræðni býr yfir snilld, orku, göldrum.
William Hutchinson Murray