Vilji er vald. Við tengjum orðið vald gjarnan við ofbeldi og kúgun þeirra sterkari gagnvart þeim veikari – valdbeiting, yfirvald, ægivald.
Þetta er notkun á orðinu sem er algerlega góð og gild, en í þessum skrifum hefur orðið vald aðra merkingu og kærleiksríkari:
Vald er að valda eigin lífi; vald er val um hvað þú gerir í lífinu og hvernig þú velurað valda því. Markmiðið er að þú finnir til slíkrar ástar í eigin garð að þú leyfir þér að velja fyrir þig, í þínu lífi. Að þú viljir þig alltaf.