Fara í efni

Veistu til hvers ganga þín liggur - hugleiðing frá Guðna

Laugardagur og hugleiðing frá Guðna.
Ljósmynd: Eran Yerushalmi
Ljósmynd: Eran Yerushalmi

Hvernig gengur þér í tilganginum?

Og veistu til hvers ganga þín liggur?

Tungumálið segir okkur djúpan sannleika sem hefur verið til staðar í því allan tímann en við höfum verið of blind til að sjá. Ég elska það þegar ég sé orðin fyllilega, þegar ég sé loksins samhengið í merkingu orðs og skynja sannleika þess til fulls.
Tilgangur. Til-gangur.

Er hægt að skapa skýrara orð?

Áður en ég frelsaðist frá oki hugans og lærði að hlusta á hjartað og öruggan slátt þess var ég eins og lauf í vindi. Og merkilegt nokk þá er þetta lýsing sem margir skjólstæðinga minna nota þegar þeir koma fyrst til mín:
„Ég er eins og lauf í vindi. Ég fýk til og frá og lendi hér og þar og hvergi; kem við á mörgum stöðum sem ég ætlaði mér aldrei að mér vitandi að fara á og geri hluti sem ég hefði aldrei ákveðið sjálfur að gera,“ sagði einn þeirra, með þunga brún og fjarræn augu, föst í eftirsjá eftir glötuðum tíma.

„En hvernig komstu hingað?“ spyr ég á móti. „Hingað til mín? Hvernig komstu hingað og af hverju komstu hingað?“
„Tja, ég kom hingað af því að ég vildi það – af því að ég vildi losna og frelsast undan þjáningunni,“ svarar hann.
„Af því að þú vildir það – í þínum eigin vilja.

En þú hefðir aldrei ratað hingað nema vegna þess að áður varstu lauf í vindi. Þú ákvaðst fyrir löngu að verða lauf í vindi – að láta þig berast á svipti- vindum sjálfsvorkunnar, án ábyrgðar – til þess að geta alltaf bent á einhvern annan og lýst hann ábyrgan. Þú ákvaðst að komast hingað og til þess þurftirðu að ákveða, í eigin vilja fyrir mörgum árum, að verða lauf í vindi; til þess þurftirðu að ferðast með vindinum inn í aðstæður sem særðu þig nóg til að þú vildir koma hingað. Sjálfviljugur.
Viljinn var alltaf til staðar, óviljandi.
En alltaf þinn. Alltaf.