Um leið og þú ákveður að þú verðskuldir ljósið – um leið og þú opnar dyrnar og leyfir ljósinu að lýsa upp líf þitt – þá geturðu lifað til fulls.
Myrkrið er einfaldlega ekki til – myrkur er ekkert annað en skortur á ljósi.
Þú ert upplýst vera og hefur alltaf verið það. Þú værir ekki lifandi vera heldur dauð ef ekki væri í þér ljós, orka; lífsafl sem heldur saman þessari undarlegu mold sem er holdið sem líkami þinn er.
Sjálf þitt kann að hafa aðskilið sig frá uppsprettunni og ljósinu hreina, en ferðinni hefur alltaf verið heitið aftur að uppsprettunni, aftur í ljósið, aftur í ljósið sem ert þú.