Umræða um mettaða fitu hefur verið mikil undanfarin ár, bæði á Íslandi og annars staðar og margir vísindamenn halda því nú fram að mettuð fita sé ekki jafn skaðleg fyrir líkamann og haldið var.
Vilmundur segir að rannsóknin sem gerð var, byggist á gögnum frá Hagstofunni, Hjartavernd og sjúkrahúsunum. Við hana var notað breskt rannsóknamódel, sem gerði það kleift að meta hversu mikil áhrif hver og einn þáttur hafði á þá fækkun sem varð á dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma á umræddu tímabili. Vilmundur segir að módelið hafi sýnt að breyting á lækkun kólesteróls í blóði manna hafi vegið þar allra þyngst. Menn hafi til dæmis árið 1980, innibyrt 238 kíló af nýmjólk og mjólkurvörum á mann á ári, en 26 árum síðar, árið 2006 var neyslan komin niður í 64 kíló á mann. Framhjá því verði ekki horft, en aðrir þættir hafi einnig skipt máli, eins og það að reykingar minnkuðu, blóðþrýstingur lækkaði og menn fóru að hreyfa sig meira.