Rétt áður en ég hélt okkar fyrstu ókeypis sykurlausu áskorun tók ég viðtal við Sigrúnu frá heimasíðunni cafeisigrun með hollráðum að sleppa sykri og hvað ætti að nota í staðinn.
Á tímabili sagði maðurinn minn mér að hann væri með sykurþörf sem hann var ekki vanur að fá, svo ég gerði fyrir hann jógúrt út alla vikuna og skellti síðan mynd af því á facebook. Mínútum seinna voru allir að biðja um uppskriftina svo ég gat ekki annað en deilt henni með þér. Sjáðu hana hér hér.
Grænkál getur verið eitt það næringaríkasta sem þú getur gefið líkamanum og fær hæstu stig næringargilda í samanburði við önnur græn laufblöð og því tilvalið að læra leiðir að geyma grænkálið vel. Lestu meira hér.
Þú veist að uppskrift er góð þegar þú gerir hana og hún klárst samdægurs. Það var sagan bakvið þessar gómsætu gulrótamúffur sem slógu verulega í gegn um páskana í fyrra. Toppað með kókoskremi og valhnetu…mmm náðu í uppskriftina hér.
Þegar þú byrjar að hlusta á líkaman geturðu lært heilmargt. Líkaminn vill hafa allt í jafnvægi svo hvort sem þú sækir í salt, sterkt eða sætt getur það verið vísbending um skort á vítamínum eða steinefnum, næringu, svefn eða öðru. Sara heilsumarkþjálfi hjá okkur skrifaði þessa grein og geturðu lesið hana hér.
Fullkomið dæmi um það hvernig líkaminn sækir eftir fæðu til að uppfylla jafnvægi, vítamínskort eða annað sem hann þarfnast. Með því að hlusta á mína óbælandi löngun og taka litlar breytingar samkvæmt þeim náði ég fljótt að upplifa jafnvægi og sátt. Lestu hvað ég gerði í fullri grein hér.
Ekki leyfa svörtu baununum í uppskriftinni að plata þig, ég deili aðeins þeim uppskriftum með þér sem hafa verið prófaðar á venjulegu fólki eins og þér. Prófaðu þessar sem prótein snarl og sláðu á sykurþörf í leiðinni. Þessar eru hrikalega góðar.
Þær 5 hollustu “gildrur” sem ég féll í og skemmdu fyrir mér og minni heilsu svo þú þarft ekki að lenda í því sama. lestu fulla grein hér
Þú gætir horft á glútenfríarvörur öðruvísi eftir þessa grein. Þar sýndi ég ítarlega þau innihaldsefni sem leynast bakvið glútenfríar vörur.
Glúten er ákveðið form af próteini sem er í flestum hveitivörum og yfir 30-50% manna í dag eru með viðkvæmni eða óþol fyrir glúteni án þess að vita af því. Lestu greinina hér til að komast að því hvort þú ættir að vera glútenfrí eða ekki.
Ef þér líkaði greinin, skráðu þig á póstlista okkar og settu like á facebook :)
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi