1. Veldu ávallt það heilsusamlegasta. Skimaðu yfir veisluborðið og leitaðu eftir einhverju hollu eða próteinríku. Þetta gætu verið ávextir, spelt brauð með pestó, salat, kjúklingur eða annað sem þú telur vera það heilsusamlegasta í boði. Með því að gefa líkamanum hollari kosti ertu að veita honum meiri næringu og minnka líkur á ofáti af eintómum kolvetum og kaloríum sem gefa þér enga seddu.
2. Fylgstu með hvað þú ert að borða. Veittu magninu athygli. Ef þú ert að dreifa skömmtunum yfir langan tíma og fara þannig margar ferðir fyrir ábót, áttaru þig oft ekki á því hversu mikið þú hefur innbyrgt og hvort þú sért södd eða ekki.
3. Drekktu meira vatn. Drekktu 1-2 glös af vatni eða hreinu sódavatni inná milli þess að þú færð þér á diskinn. Undirstúka heilans stjórnar bæði hungri og þorsta og sendir þér sömu skilaboðin þegar þú upplifir svengd eða þorsta og stundum erum við ekki einu sinni svöng, heldur þyrst.
4. Notaðu minni diskinn eða skuldbindu þig við að fara bara eina ferð Rannsóknir sýna að einföld breyting á matardisk frá því að nota 30 cm disk í að nota 25 cm disk getur minnkað matarskammtinn sem þú neytir að allt að 22%. Ekki hrúa samt á diskinn þinn þannig að þú myndir svo hátt fjall að þú farir að skapa snjóflóðahættu.
5. Sestu á meðan þú borðar. Við bæði meltum mat okkar betur og tökum upp næringu frá fæðunni með því að borða sitjandi. Ef þú átt tök á borðaðu þegar þú ert sitjandi og þegar þú stendur og spjallar hafðu þá glas af vatni eða hreinun sódavatni við hendi ef þú þarft.
6. Deildu eftirréttinum. Ef þú hefur áhyggjur á að borða of mikinn sykur, deildu eftirréttnum með öðrum. Þú minnkar þannig sykurmagnið sem þú innbyrðir.
7. Ekki koma sársvöng. Eitt það versta sem við getum gert líkamanum er að svelta hann. Að svelta getur ruglað í hormónum, skapað skjaldkirtilsvandamál og sett líkama okkar í sveltgír þannig hann hægir á allri brennslu og ruglar meltingunni, sem leiðir til þess að maturinn sé geymdur sem fita en ekki orka. Fáðu þér próteinríkt snarl, 1-2 klst fyrir veisluna, t.d möndlur, chiagraut, epli með hnetusmjöri. Próteinið mun fylla þig og seðja og fyrirbyggja blóðsykurfall. Þú minnkar þannig líkurnar á að skófla í þig veitingum ef þú ert ekki svöng þegar þú mætir.
8. Komdu með eitthvað á borðið, ef viðeigandi. Ef þú kemur með eitthvað heilsusamlegt eins og stórt salat, grænmeti og heimagerða ídýfu á fallegum bakka, ávexti, hollt brauð með pestó sem dæmi er auðvelt að vera viss um að þú fáir þér eitthvað hollt og geturðu þá fengið þér minna af öðrum réttum í boði.
Ég ætla sannarlega að nota þessi hollráð í næstu veislu, ef þér líkaði greinin væri ég voða þakklát ef þú deildir með á facebook og segðir vin frá sem gæti notað ráðin í næstu veislu.
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi