Að sleppa sykri hefur sjaldan verið eins einfald eða hvað þá bragðgott með sykurlaus í 14 daga áskorun. Ef þú ert ekki skráð/ur nú þegar vertu viss um að skrá þig ókeypis hér og fá fyrstu uppskriftirnar og innkaupalistann sendan um hæl.
Í hverri viku styðjumst við, við þrjár lykilfæðutegundir sem geta hjálpað líkamanum að draga úr sykurlöngun þar sem gjarnan er sykurlöngun sprottin af ójafnvægi í næringu eða lykilvítamínum eins og þessum. Til að slá á sykurþörfina er þetta lykilatriði. Sjáðu hér fæðutegundir úr okkar fyrstu viku
Hér kemur svo dásamlegur sykur “detox” drykkur sem slær á sykurþörfina
4 góð Handfylli af blaðgrænu (spínat/lambhagasalat)
1/2 gúrka
1 lífrænt epli
1 banani eða 1 avocadó
6 msk sítrónusafi
5 msk Chia fræ
1 msk Möndlusmjör
4 bollar möndlumjólk
1.Setjið allt í blandara og hrærið. Bætið við 1-2 dropum steviu fyrir sætara bragð.
Hollráð: Tvöfaldaðu uppskriftina og geymdu í kæli í 2 daga. Neyttu um morguninn og seinnipart.
Skráðu þig hér til þess að vera með og fá fleiri dásamlegar og sykurlausar uppskriftir
Sjáðu hvað þú gætir átt von á með því að sleppa sykri í 14 daga…
“Betri líðan, jafnari orka og aukin vitund um það sem maður borðar. Svo er þetta er líka þræl gaman, maður hefur gott að því að skoða almennilega hvað maður lætur ofaní sig.” — Svanbjörg Pálsdóttir
“Þetta opnaði augu mín algjörlega fyrir öllum leyndu gildrunum. Mér hefur liðið alveg rosalega vel og finnst maturinn alveg hreint snilldarlega og syndsamlega góður.” — Lovísa Vattnes
“Ég er búin að missa 5kg og verkir í höndunum farnir og sef miklu betur Ég hef ekki fengið höfuðverk eða slæmt mígreniskast síðan ég byrjaði sem er æði og ég er orku meiri :D” — María Erla Ólafsdóttir
Hefur þú prófað að sleppa sykri? Hversu mikinn sykur telur þú þig neyta í dag?
Ef þér líkaði greinin, smelltu á like á facebook og deildu með vinum og ekki hika við að skrá þig í sykurlausu áskorunina, sykurleysið verður bráð leikur einn fyrir þér
Umfram allt eigðu yndislega viku.
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi