Einn vinsælasti morgunmaturinn, sérstaklega hjá börnum, er morgunkorn sem getur innihaldið mikið magn af sykri. Einföld leið til að minnka sykurinn í upphafi dags er að borða frekar hafragraut eða t.d súrmjólk með múslí. Ef morgunkorn er á borðum er hægt að velja sykurlítið morgunkorn og í stað þess að sykra það má bæta út í rúsínum, abríkósum og öðrum þurrkuðum ávöxtum til að gera það sætara.
Gosdrykkir og djús eru að stórum hluta sykur en oft er sykur stærsti hluti drykkjarins á eftir vatni. Vatn er að sjálfsögðu besti drykkurinn en ef kranavatnið heillar ekki má „krydda“ það með því að skera niður lime, sítrónu, appelsínu eða epli til að bragðbæta vatnið á náttúrulegan hátt.
Sætabrauð með kaffinu. Þar er einfalt mál að skipta sætabrauðinu út með grófara brauði með áleggi. Það er líka orka sem endist manni lengur inn í daginn.
Í mjög mörgum tilfellum má skipta sykri út með hunangi sem er dísætt, en mun hollara en hvítur sykur.
Það er ósanngjarnt að fara fram á að fólk hætti að borða súkkulaði. Það er einfaldlega of gott til þess. Hins vegar eru litlir bitar alveg jafn bragðgóðir og stórir bitar. Taktu lítinn bita og njóttu hans í botn með því að láta hann bráðna upp í þér.
Gervisætur eru oft ekkert betri en hvítur sykur og margar þeirra geta orsakað magaverki og
óþægindi. Nýttu þér fremur náttúrulega sætugjafa og stilltu þeim í hóf.
Fljótleg og auðveld breyting sem þú getur strax framkvæmt er að nota ekki sykur til að sæta kaffið þitt eða teið.
Sofðu meira, hvíldu þig og taktu slökun. Þegar þú ert uppspennt/ur mun líkaminn frekar
krefjast orku í formi sykurneyslu. Þessi löngun er oft vegna svefnleysis, við förum of
seint að sofa eða vöknum of snemma allt árið um kring.
Kóríander, kanill, engifer, kardimommur og negull sæta mat á náttúrulegan hátt og minnkar sykurlöngun.
Það hjálpar til við að ná jafnvægi á blóðsykurinn, gefur aukna orku og minnkar spennu
án þess að þér finnist þú þurfa að innbyrða sykur.
Munið bara, allt er gott í hófi.