Því skal leitast við að nota sem mest af ferskum kryddjurtum en úrval þeirra hefur stórbatnað á síðustu árum. Krydd sem geymt er ómulið er líklegra til að varðveita gæðin betur, mulið krydd geymist mun síður og best er að kaupa það í litlum skömmtum.
Gott er að geyma krydd í loftþéttum umbúðum á svölum stað og forðast að geyma það í hita, líkt og í skáp ofan við eldavél eins og svo algengt er.
Nafn þessa krydds er að öllum líkindum til komið vegna bragðsins sem ber keim margra kryddtegunda án þess þó að vera blanda úr þeim, s.s. neguls, múskats og kanils. Allrahanda er helst notað í alls kyns kjötrétti, helst karrírétti og kryddlegi, auk þess sem það er notað í bakstur. Þetta krydd er ómissandi í rúllupylsu og kæfu.
Basilíka er mest notuð í löndum við Miðjarðarhaf sem og í Taílandi. Þá hefur notkun basilíku aukist verulega á Ítalíu, í Frakklandi sem og annars staðar í Norður-Evrópu. Basilíka er mikið notuð við ítalska matargerð, s.s. í ýmsa tómat- og pastarétti sem og á pitsu. Gott er að nota kryddið á íslenska lambakjötið, í ýmsa kjötpottrétti með víni og hvítlauk, kálfakjöt, með hvítfisk og sjávarfangi, hrísgrjónarétti, súpur og ýmsa grænmetis- og ostarétti. Basilíka þolir illa eldun, kryddið verður rammt á bragðið og því ber að nota það rétt fyrir lok eldunar.
Broddkúmen er íslenska heitið yfir kryddið cumin. Algengur miskilningur er að þetta krydd eigi eitthvað skylt við kúmen, þótt fræ þeirra séu svipuð útlits er bragðið ólíkt. Broddkúmen er mjög bragðmikið og verður að nota varlega til að forðast að það sé yfirgnæfandi. Broddkúmen er mikið notað í austurlenskri matargerð þar sem það er í langflestum karríblöndum. Það er einnig mikilvægt í mexíkóskri og norður-afrískri matargerð. Þá er það einnig mikið notað í indverskri matargerð, t.d. yfirleitt alltaf í tandoori-réttum.
Cayenne pipar er sérstök tegund af chilidufti. Það er mjög svipað á bragðið og af svipuðum styrkleika og hefðbundið chili en duftið er fíngerðara.
Chiliduft hefur nær endalaust notagildi í matreiðslu. Það er mikið notað í mexíkóska matargerð, chilibaunir, og í Bandaríkjunum er til dæmis algengt að því sé blandað saman með kúmeni, óreganó og súkkulaði. Þá er það mikið notað í karríuppskriftum.
Dill er mikið notað í grískri og skandinavískri matargerð. Það hentar vel á fisk, lambakjöt, grísakjöt, osta, ávexti, súpur og sósur. Þá er það gjarnan notað sem litarefni í sósur, frauð og paté ef sóst er eftir grænum lit. Dill er mjög mikið notað í síld og graflax. Þetta krydd er lítið sem ekkert notað í Suður-Evrópu, á Spáni eða Suður-Frakklandi.
Bragð einiberja er sætt, þau eru ilmrík og bragðmikil og bera keim af barri. Þau eru ómissandi með villibráð, í fyllingar í alifugla, í sósur, súpur og kryddlegi. Berin eru jafnan mulin vel fyrir notkun í mortéli. Einiber eru einnig notuð sem bragðefni í gin og aðrar áfengistegundir.
Þurrkað engifer er töluvert frábrugðið því ferska á bragðið. Þurrkað og mulið engifer er einkum notað í bakstur og eftirrétti og er einnig gott í súpur og sósur.
Saffran er dýrasta krydd veraldar og algengt að heimsmarkaðsverð þess sé í kringum 250.000 krónur fyrir kílóið. Ástæða fyrir þessu háa verði skýrist af því að gríðarlega mörg blóm þarf til að framleiða kíló af saffrani eða um það bil 150.000-200.000. Þá er mikil vinna við framleiðslu þess, frænið er eingöngu hægt að handtína og þarf tínsla þess að fara fram snemma morguns til að koma í veg fyrir að hitinn rýri gæði frænisins. Blómgunin stendur aðeins yfir í 4 vikur frá miðjum október fram í miðjan nóvember. Eftir að frænið hefur verið skilið frá blóminu hefst þurrkunin. Hún getur verið tvenns konar, annars vegar sólþurrkun sem tekur 3-5 daga, eða þurrkun við eld af viðarkolum og þá er fræninu dreift á silkidúk og hann hengdur yfir lítinn eld frá viðarkolum. Saffran hentar einkar vel í fiskisúpur og sósur, það er algengt í ítalskri matargerð, t.d. risottó, auk þess sem það er algengt í spænskri matargerð, t.d. paellu. Það er hins vegar mun meira notað í Mið-Asíu og á Norður-Indlandi heldur en í Evrópu.
Þegar við notum saffran er hægt að rista þræðina á heitri pönnu, mylja þá og setja síðan í heitt vatn eða soð í stutta stund áður en þeir eru notaðir. Ef nota á þræðina í heilu lagi er best að leggja þá í bleyti í að minnsta kosti 15 mínútur fyrir notkun og helst lengur því það tekur saffran allt að 4 tíma að skila bragðinu til fullnustu.
Sesamfræin hafa sætan hnetukeim. Þau eru mikið notuð í arabískri matargerð og eru til dæmis notuð í tahini.
Mikilvægt meðal annars í taílenska- og indónesíska matargerð. Það er stór þáttur í karríréttum.