Grænkál myndar ekki höfuð eins og flestar aðrar káltegundir, heldur mjög stór og hrokkin blöð. Það er tvíært, þannig að nái það að lifa af veturinn, myndar það klasa með gulum blómum næsta sumar. Grænkál þrífst einkar vel hér á landi. En hefur jafnframt afar takmarkað geymsluþol.
Grænkál er bragðgott, einkum ef það hefur náð að frjósa, því frostið örvar niðurbrot á mjölva þannig að það verður sætara. Í mörgum löndum er grænkál vinsælt grænmeti og er selt í álíka magni og höfuðkál.
Eins og áður er nefnt geymist grænkál fremur stutt, en þó á að vera hægt að geyma það í viku eða lengur. Geymið það í kæli þar sem hitinn er 0 - 5°C. Best er að geyma það í þeim pakkningum sem það er selt í, oftast plastpoka með loftgötum. Ef kálið er orðið slappt í kælinum þá er gott að skella því í kalt vatn í smá stund þá sýgur það í sig raka og verður stökkgra.
Ekki er gott að borða grænkál hrátt eins og hvítkál vegna þess hve blöðin eru grófgerð, en það hentar hins vegar vel í ýmiss konar soðna rétti. Hægt er að sjóða það, smörsteikja, steikja á pönnu eða nota í stöppu. Hrátt grænkál hentar reyndar mjög vel í alls kynns þeytinga.
Já. Blöðin eru skoluð, skorin niður og stilkarnir fjarlægðir. Síðan er kálið soðið í bullandi vatni í 3 mínútur, því pakkað inn og sett í frysti þegar það hefur kólnað. Við snöggsuðu og frystingu tapast eitthvað af næringarefnum og bragðgæðum, en þar sem grænkál er svo vítamínríkt í byrjun er næringargildi þess enn hátt eftir frystingu.
Alla
Ætur hluti 60 %
|
|
Innihald í 100 g |
|
Vatn 85 g
|
|
Orkurík efnasambönd |
|
Prótein 5,0 g
|
Trefjar 4,3 g
|
Kolvetni 7,3 g
|
Fita 0,6 g
|
kj 235
|
kcal 56
|
Steinefni |
|
Járn 2,3 mg
|
Kalk 200 mg
|
Vítamín |
|
A Ret. ein 850 µg
|
B1 0.15 mg
|
B2 0.29 mg
|
Niacin 2,8 mg
|
C (askorbínsýra) 150 mg
|
Grænkál er hitaeiningasnautt og góð uppspretta A-, B- og C-vítamína auk kalís, fosfórs og járns.Líkt og hjá öðrum káltegundum eru það grænu blöðin sem eru vítamínríkust þannig að í raun er grænkál betri vítamíngjafi en til dæmis hvítkál. Það er gömul trú að grænkál hafi fyrirbyggjandi áhrif á sjúkdóma, sennilega vegna hins háa C-vítamíns- og steinefnainnihalds.
Af vef islenskt.is