- Mikið af unnum mat með ýmsum óæskilegum aukaefnum. Aukið framboð skyndibita. +
- Orkumikill matur en oft næringarsnauður. Fullt af hitaeiningum en lítið af nauðsynlegum vítamínum og steinefnum.
- Afleiðing þessara breytinga á matarvali okkar ásamt hreyfingarleysi á stóran þátt í heilsubresti sem hrjáir mörg okkar.
Við getum snúið við þessari þróun með því að gera meðvitaðri matarinnkaup.
1. Kaupið ferskar afurðir og forðist mikið unnan mat. Veljið t.d frekar lífrænar vörur ef þær eru á boðstólnum. Vinnið matinn frá grunni í stað þess að versla tilbúnu réttina. Með þessu vitið þið hvað þið eruð að láta ofan í ykkur og eruð auk þess að næra líkama ykkur mun betur. Ef þið hafið möguleika á að versla við bónda beint frá býli, endilega nýtið það.
2. Lærið að lesa innihaldslýsingar og næringargildi matvara. Innihaldslýsing og næringargildi matvara eru leiðirvísir um hollustu matvara. Ef þið eruð í vafa um hollustu matvörunnar, skilið þá vörunni aftur í hilluna. Einföld regla varðandi innihaldslýsingu, er að magn innihaldsefna er í minnkandi röð efna. Næringargildi segir hinsvegar til um fjölda hitaeinginga (kkal); magn kolvetna, próteina, fitu,vítamína og steinefna.
3. Forðist flestar matvörum í kössum, boxum, með teiknimyndafígúru á og í skærum litum. Framleiðendur matvara vita að litir höfða mikið til skynjanna okkar og við veljum frekar vörur þar sem skærir litir s.s gulur, rauður eða blár eru ríkjandi. Þvímiður eru óhollar matvörur oft hafðar í litríkum umbúðum.
4. Gerið lista yfir matarinnkaupin. Með því að hafa lista yfir það sem maður ætlar að kaupa þá freistast maður síður til þess að versla eitthvað sem óhollt eða ónauðsynlegt.
Heimild: hjartalif.is