Þú getur látið vorlaukinn sem þú hefur þegar skorið niður vaxa aftur. Með því að skilja eftir 2 cm við rótina og setja þá í lítið glas með vatni í glugga eða bjart herbergi.
Þegar hvítlaukur byrjar að spíra skaltu setja hann í glas með smá vatni og látið hann spíra enn meira. Spírurnar hafa mildara bragð en hvítlaukurinn sjálfur en þær eru afar góðar í salöt, saman við pastarétti og fleiri rétti.
Til að rækta upp Bok Choy þá notar þú rótina og setur í vatn í góða birtu. Á einni til tveimur vikum máttu setja rótina í mold og þú færð heilan Bok Choy haus áður en þú veist af.
Settu toppinn af gulrótunum á disk með smá vatni. Hafðu diskinn í björtu herbergi eða í glugga. Og þú munt fá gulrótartoppa til að nota í salatið þitt.
Klipptu greinar af basil og settu í glas með vatni og hafðu í beinu sólarljósi. Þegar ræturnar eru orðnar um 2cm langar þá getur þú skellt þessu í mold og með tímanum vex basil planta.
Skerðu neðri hlutann af selleríinu af og settu í pott eða skál með volgu vatni í sólarljós. Laufin fara að þykkna og vaxa beint út úr neðri hlutanum, svo færir þú selleríið í mold.
Þú tekur botninn á salatinu og setur í smá vatn. Muna bara að vökva. En aldrei drekkja botninum í vatni. Eftir nokkra daga koma rætur og ný lauf fara að myndast og þá máttu skella þessu í mold.
Stilkirnir af kóríander vaxa aftur ef þeir eru settir í glas af vatni. Þegar ræturnar eru orðnar næginlega langar þá má skella þessu í mold og hafa í góðri birtu. Eftir nokkra mánuði ertu komin með góða kóríander plöntu.
Heimild: healthybodynow.net