En raunveruleg sérstaða kiwi er sú að hann er afar hollur. Oft er kiwi kallað “powerfood eða superfood”.
- Hjálpar meltingunni með öflugum ensímum
Kiwi inniheldur actinidain sem er prótein er leysir upp ensími og hjápar það meltingunni á afar góðan hátt.
- Kemur blóðþrýstingnum til aðstoðar
Hátt hlutfall kalíums í kiwi heldur blóðsöltunum í jafnvægi með því að vinna gegn áhrifum af natríum.
- Ver DNA-ið okkar gegn skemmdum
Rannsók sem gerð var á einstökum samsetningum á andoxunarefnum í kiwi sýndi að það ver DNA frumur frá oxun. Margir sérfræðingar telja að þetta verjir frumurnar gegn krabbameini.
- Styrkir ónæmiskerfið
Hátt hlutfall C-vítamíns í kiwi ásamt andoxunarefnunum hefur sannað að þessi samsetning styrkir ónæmiskerfið okkar.
- “Smart Carb” til að léttast
Kiwi er gott fyrir blóðsykurinn og afar trefjaríkt. Í kiwi má finna glycemic sem hefur stjórn á blóðsykri. Þetta tvennt saman byggir upp sterkt insúlín kikk svipað og aðrir ávextir gera með sykur innihaldi sínu. Líkaminn svarar þessu með því að hlaða ekki á sig fitu.
- Heilbrigð melting
Kiwi er stútfullt af trefjum. Trefjar koma í veg fyrir hægðartregðu og önnur þarma vandamál.
- Hreinsar líkamann af eiturefnum
Trefjarnar í kiwi eru þannig gerðar að þær hreinsa þarmana af óæskilegum uppsöfnuðum efnum.
- Kiwi er gott fyrir hjartað
Að borða 2 til 3 kiwi á dag dregur úr áhættunni á því að fá blóðtappa um 18%. Margir taka asperín til að koma í veg fyrir blóðstorknun en asperín getur haft aukaverkanir. Kiwi hefur hins vegar engar aukaverkanir.
- Kiwi er gott fyrir sykursjúka
Kiwi er flokkað með ávöxtum sem eru lág í blóðsykurs vísitölu. Sem þýðir að það hækkar ekki blóðsykurinn skyndilega.
- Skapar basískt jafnvægi í líkamanum
Kiwi er í flokki með þeim ávöxtum sem eru mest basískir, sem þýðir að kiwi inniheldur mikið af steinefnum sem vinna gegn of háu sýrustigi í líkamanum. Það besta við þetta er að húðin verður fallegri, þú sefur betur, færð sjaldnar kvef og þetta hjálpar til í baráttunni við liðagigt.
- Rosalega gott fyrir húðina
Kiwi er ríkt af E-vítamíni, sem er andoxunarefnið er ver húðina fyrir daglegum ágangi veðurs og vinda.
Heimildir: care2.com