Dásamlega hollt og gott bananabrauð fyrir krakka, konur og karla.
Uppskrift :
1 egg
1 dl púðursykur
3 bananar (vel þroskaðir)
5 dl KORNAX heilhveiti (grænn poki)
½ - ¾ tsk salt
½ tsk matarsódi
½ tsk lyftiduft
Aðferð :
Hrærið egg og sykur vel saman í dágóða stund, eða þar til
Blandan er orðin létt og ljós.
Stappið bananana gróflega með gaffli og bætið út í eggjahræruna.
Bætið öllum þurrefnum saman í skál og blandið síðan varlega saman við hin hráefnin.
Setjið í smurt brauðform og látið í 190°c heitan ofn í 40 mín.
Njótið~