Heill haus af Bok Choy
2 græn epli
Hálfur ananas
Slatti af engifer – eftir smekk bara
1 stór sítróna
Hálfur poki af spínat
Half gúrka
Haugur af myntu og kóríander - eftir smekk bara
Þú byrjar á því að djúsa bok choy og spínat og hreinsar svo djúsarann.
Svo máttu setja allt hitt hráefnið í djúsarann.
Þetta er c.a 1 líter af djús. Passar flott í tvær 500ml krukkur og muna að geyma í ísskápnum.
Svo drekkur þú þetta þegar þér hentar yfir daginn. Eitt glas á dag.