Allt er vænt sem vel er grænt ekki satt. Og þá sérstaklega grænkál.
Allt er vænt sem vel er grænt ekki satt. Og þá sérstaklega grænkál.
Þessi græni er dásamlega góður og fullur af næringarefnum.
Uppskrift er fyrir 2. Grænn drykkur númer 13.
Hráefni:
2 bollar af fersku grænkáli
2 bollar af vatni
3 bananar
¼ avókadó
Leiðbeiningar:
- Blandið saman grænkáli og vatni þar til er orðið mjúkt.
- Nú má bæta rest af hráefnum saman við og munið að láta blandast vel saman.
Notið a.m.k eitthvað af ávöxtum frosnum til að gefa drykkum ferskt bragð og hafa hann kaldann.
Njótið vel!