Allur matur á að fara upp í munn og niður í maga, – segir í vísunni og er ekki óvarlegt að áætla að höfundur fyrrgreindra orða hafi farið með réttmæli þar. En hversu ljúffengur sem græni drykkurinn er, getur illa blandaður grænn drykkur setið eftir í kekkjum og Guð forði okkur frá því að brosa blítt með spínatblöð milli tanna, hress og kát eftir síðasta gúlsopann.
Röðun skiptir höfuðmáli hér og svo hlutföllin. Engir tveir blandarar eru alveg eins að gerð og lögun, en tvær megingerðar blandara eru ríkjandi á markaðinum í dag. Hér að neðan förum við ofan í saumana á því hvernig best er að raða innihaldsefnum ofan í blandarann og hvernig þú átt að fá sem mest út úr græna orkudrykknum.
Þú ættir alltaf að byrja á græna kálinu þegar þeyta á í grænan boost, (græna kálið fer í botninn á skálinni), hella því næst vökvanum út í blandarann og þeyta vel í fáeinar sekúndur áður en ávöxtum, berjum og jafnvel fræjum er þeytt saman við. Klakinn, ef kæla á drykkinn, fer síðastur í blandarann – en svona er ágætt að bera sig að:
Þegar þú ert með smáblandara (eða einstaklingsblandara, eins og hann er líka kallaður) skaltu snúa röðinni við, því þú þarft að snúa könnunni á hvolf til að geta skrúfað skálina fasta við hnífinn og blandað drykkinn. Því er best að setja innihaldsefnin í miniblandarann í eftirfarandi röð:
*ATH: Eins og komið var inn á í inngangi greinar, vilja fæstir (ef þá nokkur manneskja) ganga um með græn spínatlauf milli tanna – skælbrosandi, með grænan náttúrudrykk í annarri hendi. Þess vegna er ágætt að byrja á því að blanda saman vökva og grænu laufkáli í 15 – 30 sekúndur, eða þar til blandan er orðin slétt og áferðarfalleg. Stoppaðu því næst blandarann, taktu lokið af og bættu ávöxtum og öðrum innihaldsefnum út í blandarann!
Grein af vef kvon.is