Þessi er nokkuð góður skal ég segja ykkur.
Hráefni:
10 stk. tómatar skornir í báta
2½ stk. agúrkur hýddar og skorinar í bita
4 stk. vorlaukar skornir í bita
4 stk. hvítlauksrif fínt söxuð
750 ml tómatsafi
cayennepipar af hnífsoddi
smá sjávarsalt
nokkrir ísmolar
Allt sett í blandara og keyrt vel saman þar til kekkjalaust.
Þessi styrkir ónæmiskerfið; A-, C- og E-vítamín, fólínsýra og járn.
Gott að bera fram með þessu agúrkustöngul ef vill eða dillkvist.
Uppskrift fengið af vef tm.is