Hressir upp á orkulausan skrokkinn
Þessi græni djús er víst rosa góður til að hreinsa líkamann, t.d eftir langa helgi eða álíka. Hann kemur systeminu í rétt horf og endurhleður frumurnar.
Hráefni:
4 græn epli
2 hausar af romaine káli
Smá biti af engifer
1 stór sítróna – án hýðis
Þú einfaldlega setur allt hráefnið í djúsarann þinn og voila…þú ættir að vera með 500ml af djús.
Drekkist strax og njótið~