Þessi uppskrift er án mjólkurvara, soja og hentar vegan.
20 stórir sveppir – þessir venjulegu frá Flúðum
4 hvítlauksgeirar
2 vorlaukar
2 bollar af basil laufum
½ bolli af Chives
4 lítil Chilly, rauð
¼ bolli af furuhnetum
5 msk af ólífuolíu
Safi úr hálfri sítrónu
Salt eftir smekk
¾ bolli af kasjúhnetum
2-4 msk af vatni
1 hvítlauksgeiri
3 tsk af ger
Safi úr hálfri sítrónu
Salt eftir smekk
- Leggðu kasjúhneturnar í vatn í þrjá klukkutíma eða yfir nótt, það er betra.
- Merjið hvítlaukinn og saxið niður jurtirnar, chillýið og vorlaukinn.
- Setjið þetta og restina af hráefnunum í matarvinnsluvél og látið hrærast vel. Takið þetta og setjið til hliðar.
- Settu kasjúhneturnar sem þú átt að vera búin að láta liggja í vatni yfir nótt í matarvinnsluvélina ásamt vatninu sem að þær lágu í. Láttu hrærast þangað til engir kekkir eru sjáanlegir. Þetta getur tekið dágóðan tíma. Merjið hvítlaukinn og bættu honum og restinni af hráefninu í matvinnsluvélina og láttu blandast mjög vel saman.
- Ef þú hefur nægan tíma að þá er mjög gott að geta sett bæði pestóið og kasjúostinn í ísskáp í nokkra klukkutíma til að leyfa þessu að setjast því þá er það yfirleitt bragðbetra.
- Hitið ofn á 180°C. þvoðu sveppina og taktu stilkinn úr. Settu svo pestóið ofan í sveppina og ofan á það setur þú kasjúostinn. Kryddaðu með ferskum svörtum pipar. Settu í ofninn og láttu bakast í 10 – 20 mínútur eða þangað til kasjúosturinn er orðinn gylltur og sveppirnir eldaðir í gegn.
- Taktu nú sveppina út og settu þá á bakka og vittu til, þeir munu hverfa ofan í alla munna eins og skot.