Við vitum að blómkál hefur ekki vængi en þessi uppskrift er svona í anda „buffalo wings“.
Við vitum að blómkál hefur ekki vængi en þessi uppskrift er svona í anda „buffalo wings“.
Klístraðir, saltaðir, kryddaðir og algjörlega ávanabindani: þessir klístruðu hnetusmjörs blómkáls „vængir“ geta verið meðlæti en þessi uppskrift fær alla til að líta framhjá aðalréttinum og grípa í klístraðan blómkáls „væng“.
Þessi uppskrift er: mjólkurlaus, sykurlaus, hveitilaus og frábær fyrir börnin.
Hráefni:
1 meðal stór blómkálshaus
1 msk af hnetusmjöri (sykurlausu)
2 tsk af lífrænni kókóshnetuolíu (um 20g)
1 msk tamari eða önnur góð soja sósa
Safi úr hálfu lime (geymdu hinn helminginn)
1 tsk af garam masala
Leiðbeiningar:
- Forhitið ofninn í 180 til 200 gráður.
- Skerið blómkálið í bita og setjið á bökunarplötu með restinni af hráefninu, passa að hver biti af blómkáli sé hulinn vel af blöndunni.
- Dreifið blómkálinu jafnt yfir plötuna.
- Hyljið með álpappír og setjið ofarlega í ofninn í 15 mínútur.
- Fjarlægið álpappír, hrærið í blómkálinu og setjið aftur í ofninn án álpappírs í 10 mínútur til að ná fram krisp áhrifum.
- Berið fram og kreistið lime safa yfir og kryddið með svörtum pipar.
Það væri gaman að heyra frá ykkur sem prufið þessa uppskrift.
Munið okkur á Instagram #heilsutorg #uppskriftir #blómkálsréttir