Innihald: / smá ólífuolía, kókosolía eða ghee / 3-4 egg / 1 lúka spínat eða grænkál / 2hvítlauksgeirar / 1-2 cm engifer / smá turmeric / smá salt / 1 msk hörfræ / 1 msk sesamfræ / smáhampfræ.
Þessa eggjahræru geri ég mér rosalega oft á morgnana eftir æfingu því egg eru það einfaldasta sem hægt er að elda og súperholl. Stundum þegar ég á turmeric rót nota ég hana í staðinn fyrir duft, kreisti bara úr hvítlaukspressu eða ríf í litlu rifjárni. Turmeric rót er erfitt að fá á Íslandi því miður og er oft auglýst sérstaklega fyrstur kemur fyrstur fær þegar hún er til. Þegar ég fer í vinnuna til Ameríku fer ég yfirleitt í dásamlegu Whole Foods og næli mér í turmeric rót.
Uppskrift og myndir: Valdís Sigurgeirsdóttir - www.ljomandi.is