Grilluð kjúklingaspjót í döðlu-BBQsósu
Aðalréttur fyrir 4
1 kg kjúklingalæri (úrbeinuð og skinnlaus)
8 grillspjót (ef þau eru tréspjót, þá þarf að leggja þau í heitt vatn í lágmark 3 tíma)
Döðlu-BBQsósa
100 g döðlur (steinlausar)
vatn
Eplaedik
Tómatsósa
Paprikuduft
Dijon sinnep
1 tsk chilisósa (sambal oleck)
Soyasósa
Aðferð:
Sjóðið uppá vatninu og döðlunum og setjið í matvinnsluvél ásamt restinni af hráefninu, blandið vel saman þar til að þetta verði þykk sósa,smakkið til með salti og pipar. Skerið kjúklinginn í litla bita ca.4x4 cm og setjið í bakka, hellið BBQ-sósunni yfir og látið marinerast í lágmark 30 mín. þá er kjúllanum þrætt uppá spjótin og þau grilluð á vel heitu grillinu.
Það er svaka gott að bera fram Cummin-jógúrtsósuna með, sjá „sósur og meðlæti“ flokkinn okkar.