Ég geri þá nokkrar einfaldar uppskriftir sem flýta fyrir eldamennskunni og geri ísskápin að nokkurs konar “hollustu sjálfsala” ef svo má segja (ólíkt hefðbundum sjálfsölum sem við sjáum víða með samlokum og súkkulaði). Minn er þá fullur af fallegum chiagrautum, tilbúnum réttum og sósum. Allt klárt fyrir okkur hjónin þegar svengdin kallar.
Á öllum mínum námskeiðum og þjálfunum legg ég mikið uppúr einföldu matarskipulagi og gef matseðil frá morgni til kvölds (og meira að segja innkaupalista) enda þekki ég hversu auðvelt er að koma með afsökun um uppgjöf ef eitthvað virðist flókið eða tímafrekt. Ef þú spyrð einhvern sem er á námskeiði mínu færðu að heyra hvað ég geri hlutina einfalda og bragðgóða! Ég hvet alla til að gefa sér klukkustund yfir helgina svo réttir vikunnar taki síðan ekki nema 15-30 mínútur.
Í dag langar mig því að deila með þér sunnudags-matarskipulagi mínu svo þú getir byrjað að hafa hollustu aðgengilegri fyrir sjálfa/n þig!
Mig langar ekki bara að segja þér hvað ég geri heldur hef ég sett saman stuttan leiðarvísi sem þú getur sótt HÉR! Getur þú prentað hann út eða haft hann tilbúinn í snjallsímanum um næstu helgi. :)
Breyttur lífsstíll þarf ekki að vera flókinn og erfiður. Ef skipulagsleysi er eitthvað sem þú hefur glímt getur þú skráð þig hér - og fengið sunnudagsmatarskipulagið mitt!
Gangi þér vel að gera þessa viku holla og bragðgóða og segðu mér frá í spjallinu að neðan hvað þér finnst gott að gera til að halda þig við heilbrigðan lífsstíl.
Endilega deilið yfir á samfélagsmiðla!
Þangað til næst sendi ég þér heilsu og hamingju,