Já, hvernig væri að prufa þessa omilettu sem er pökkuð af andoxunarefnum í stað þessara venjulegu ?
Já, hvernig væri að prufa þessa omilettu sem er pökkuð af andoxunarefnum í stað þessara venjulegu ?
Þessi nefnilega inniheldur grænkál og tómata – geggjaðir tvíburar. Hlaðið af próteini, járni og ekki nema 7 grömm af kolvetnum.
Undirbúningstími er um 12 mínútur og það tekur um 30 mínútur að elda morgunverðinn.
Þessi uppskrift er fyrir 4.
Hráefni:
6 stór egg
4 stórar eggjahvítur
¾ tsk af góðu salti
½ tsk af svörtum pipar
Parmesan eftir smekk – ferskur rifinn
2 msk af oregano – söxuðu
Olía að eigin vali
2 bollar af grænkáli – fínt söxuðu
¾ bolli af niðurskornum kirsuberjatómötum
Leiðbeiningar:
- Forhitið ofninn í 220°. Í stóra skál skal setja 6 fyrstu hráefnin og þeyta þeim saman með handþeytara. (alveg niður að oregano og nota það líka)
- Setjið létt af olíu á járnpönnu (cast iron skillet). Hitið á meðal hita. Bætið við grænkálinu og tómötum. Látið eldast þar til þetta er heitt – um 3 mínútur. Bætið nú eggjahrærunni saman við og hrærið létt saman.
- Skellið svo pönnu og öllu saman í ofninn og bakið í um 20 mínútur. Muna að fylgjast vel með svo ekkert brenni nú.
Takið úr ofni og skerið í sneiðar. Berið fram heitt.
Njótið vel!