Uppskrift gefur 8 stór stykki eða 16 lítil, skorin í kubba.
Hráefni:
1 bolli af hnetum
1 bolli af þurrkuðum ávöxtum
1 bolli af döðlum, steinlausum og þurrkuðum
Þú þarft matarvinnsluvél, glæra filmu eða bökunarpappír og beittan hníf.
Leiðbeiningar:
Ristaðu hneturnar (má sleppa því). Það má nota hneturnar ristaðar eða hráar. Ef þú ristar þær þá ertu virkilega að bragðbæta uppskriftina. Ef þú ætlar að rista þær, skelltu þeim í ofn í 10-12 mín á 180°. Þær verða að fá að kólna áður en þær eru notaðar.
Settu núna hneturnar, þurrkuðu ávextina og döðlurnr í matarvinnsluvélina. Notaðu pulse takkann nokkrum sinnum til að brjóta þetta upp. Ef döðlurnar byrja að klessast saman þá þarftu að losa þær í sundur.
Láttu matarvinnsluvélina vinna samfleytt í 30 sekúndur. Núna ætti allt að vera vel blandað saman. Passaðu upp á að það sé ekkert fast við kannta eða blaðið í vélinni.
Haltu áfram að hræra þetta saman þangað til að myndast hefur hálfgerð kúla, þetta tekur um 1-2 mínútur.
Taktu nú kúluna úr vélinni og mótaðu þykkan ferhyrning og leyfðu þessu að standa í smá tíma.
Settu smjörpappír á borð og mótaðu deigið, pressaðu vel ofan á það en deigið á að mynda ferhyrning. Pakkað því svo vel inn í plast og geymdu í ísskáp yfir nótt.
Núna skiptir þú deiginu í kubba. Þú getur skorið 8 stóra kubba eða 16 minni. Þú pakkar hverjum kubb fyrir sig í plast.
Geymist í ísskáp í nokkrar vikur eða í frysti í þrjá mánuði.
Smakkaðu endilega einn áður en þú gengur frá þessu, þú sérð ekki eftir því. Og svo getur þú gripið með þér í vinnu, ræktina eða bara í bílinn og borðað sem millibita.
Njótið~