Hádegið.
Ofnbökuð eggjakaka í papriku :)
Aðferð.
Þeyta upp tvö egg í skál
Bæta við smátt skornu grænmeti
Paprika
Sveppi
Kúrbít
Avocado
Hræra öllu saman og krydda með salti og pipar.
Þá skera heila papriku í tvennt og fylla :)
Baka eftir smekk ... fylgjast bara með þegar eggin eru orðin stinn.
Á disk fékk ég mér salat, avocado, kotasælu og ristuð sólblómafræ.
Þá paprikuna .... rífa yfir á toppinn parmesan :)
Dásamlega gott.