Þessi uppskrift hentar vegan og er hún án allra mjólkurvara einnig.
2 msk af ólífuolíu
½ tsk af sinnepsfræjum
1 tsk af kummin
1 eða 2 rauð chilly, vel marin
1 meðal stór rauðlaukur, skorin afar þunnt
2 hvítlauksgeirar skornir í þunnar sneiðar
2 bollar af sveppum, td baby bella sveppum, skornir í þunnar sneiðar
Salt eftir smekk
½ tsk af ferskum svörtum pipar
2 tsk af fersku kóríander
1 tsk af ferskum graslauk
½ lime
- Hitið olíuna á meðal hita í um 1 mínútu og bætið svo við sinnepsfræjum, kummin og bíðið þangað til sinnepsfræin fara að springa.
- Bætið nú við rauða chilly og rauðlauknum og látið steikjast í 4 mín eða þangað til að laukurinn er orðinn létt krispí.
- Hrærið nú sveppunum saman við og látið malla í aðrar 4 mínútur, bætið salti saman við.
- Bætið nú ferska svarta piparnum, kóríander og graslauknum og hrærið vel saman.
- Kreistið safann úr ferska lime ávextinum yfir allt.
Þessi réttur er æðislegur bæði einn og sér og sem meðlæti með næstum hverju sem er.
Njótið~