Ég er mjög spennt að segja ykkur frá einu af þessu verkefni en það er ný rafbók sem er aaaaaaaalveg að verða tilbúin. Mun láta ykkur vita á næstu dögum þegar allt er klárt. Þessi bók heitir "uppáhaldsréttir barnanna" og er samansafn af uppáhaldsréttum barnanna minna. En meira um það síðar.
Þessa hnetufingur smakkaði ég fyrst hjá mömmu þegar við skruppum til Akureyrar í mars. Ég segi nú ekki annað en ÞVÍLÍK SNILLD. Það er bæði negull og kanill í uppskriftinni og því kalla börnin á heimilinu þetta piparkökustangir sem kannski lýsir þeim mun betur en hnetufingur.
Uppskriftina fékk ég hjá mömmu en það fylgir uppskriftinni að hún sé fengin úr annarri speltbók Guðrúnar Rögnu en ég er búin að breyta uppskriftinni örlítið.
Hráefni:
Aðferð:
Það er óþarfi að setja súkkulaði í hvert skipti því þessar stangir eru mjög góðar bara eins og þær eru. En það er skemmtilegt að setja súkkulaði spari.
Aðferð:
Byrjið á því að mala hnetur eða setja möndlumjölið í skál.
Kanil og negul blandað saman við fínt malaðar hneturnar, síðan sykrinum og egginu.
Best að hræra þessu saman með gaffli.
Flatt út á bökunarpappír 1. cm þykkt og skorið í fingurbreiðar lengjur, sem eru svo skornar í litla fingur.
Fært yfir á bökunarplötu með pappír á og bakað í 12-15 mín v/150°C þar til fingurnir verða stökkir.
Leyfið fingrunum að kólna og dýfið öðrum endanum ofan í bráðið súkkulaði.
Uppskrift frá Heilsumömmunni.