Kvöldmaturinn.
"Jessssörí" hamborgari með frönskum :)
Þín Verslun Seljabraut er algjörlega með bestu hamborgarana.
Og þeir eru á tilboði núna .... það þurfti ekki að segja mér það tvisvar :)
Kjötborðið er svo til fyrirmyndar hjá þeim :)
Já, alltaf að hrósa því sem vel er gert.
Ég byrjaði á því að skera niður sæta kartöflu í "frönsku kartöflu" stærð.
Þá raða ég þeim á bökunarpappír með ofnskúffu undir.
Rétt nokkra dropa af olíu og gott salt.
Baka svo í ofni.
Passa bara að þær brenni ekki :)
Í leiðinni skar ég gula papriku í tvennt sem ég baka í ofni og nota sem "hamborgarabrauð".
Verður sæt og góð.
Miklu betra en brauð :)
Bearnaise sósan kemur líka frá Þín Verslun ... algjör bomba :)
Bara fara varlega þar ....
Kokteilsósan er
Sollu tómatsósa
Sýrður rjómi
Hunts "fat free" nýja sinnepið frá þeim ... sjúkt í svona sósur :)
Avocadoið bara avocado niður stappað .... alveg möst með :)
Steikti borgarann á pönnu og kryddaði með creola kryddinu frá Pottagöldrum og saltverkinu.
Grænmeti með og svo bara að njóta :)
Hver segir að hollustan þurfi að vera "boring"
Bara græja fallegan hollan mat og vera duglegur að finna upp á einhverju nýju og góðu :)
Njótið kvöldsins .... mitt kvöld er frátekið á date með Vesturbæjar ís :)
Það er föstudagur og það er minn ísdagur :) :)