Valdís Sigurgeirsdóttir heldur úti dásamlegri síðu sem hún nefnir Ljómandi.is Valdís ákvað í byrjun árs 2014 að minnka sykurinn til muna ásamt glútenmagni fyrir fjölskylduna sína. Hún galdrar fram yndislegar uppskriftir sem hún leyfir okkur að njóta með sér. En þessi kaka kemur úr smiðju Jónu vinkonu hennar.
Valdís Sigurgeirsdóttir heldur úti dásamlegri síðu sem hún nefnir Ljómandi.is
Valdís ákvað í byrjun árs 2014 að minnka sykurinn til muna ásamt glútenmagni fyrir fjölskylduna sína. Hún galdrar fram yndislegar uppskriftir sem hún leyfir okkur að njóta með sér.
En þessi kaka kemur úr smiðju Jónu vinkonu hennar.
Lime avókadó hrákaka
Botn:
80 g kókosmjöl
100 g möndlur eða heslihnetur eða mix af báðu
250 g döðlur
ögn cayennepipar
smá himalayan salt
Allt sett í matvinnsluvél og mixað saman, sett í kökuform og inn í frysti á meðan þið gerið fyllinguna.
Fylling:
2-3 avókadó
¾ bollar hlynsíróp
¼ bolli lime safi
Allt set í blandara og hellt svo yfir botninn.
Geymið í frysti í amk. klukkustund eða þar til kakan er frosin. Hægt er að skreyta með kókosflögum, rifnu súkkulaði eða kíví.
Þessi kaka er mjög bragðgóð en það er betra að bera hana fram kalda og hún getur ekki staðið mjög lengi á borði. Þessi kemur úr smiðjunni hennar Jönu vinkonu.
Tengt efni: