Ég sem ætlaði að setja inn svo margar vegan uppskriftir í mánuðinum. Ef ég á að velja eina uppáhalds þá held ég að það sé þessi. Ég var mjög yfirlýsingaglöð að ég myndi að þessu sinni verða 100 % vegan í 3 vikur en til að vera hreinskilin þá tókst það ekki alveg allann tímann. Íslensk kjötsúpa, kjúklingasúpa og kjúklingasalat slæddust með. En það að geta talið kjötréttina á annari hendi er nú bara afrek út af fyrir sig og ég er bara ótrúlega ánægð með mánuðinn.
Það er gott innlegg í umræðuna hversu mikill mengunarvaldur kjöt og mjólkurframleiðslan í heiminum fyrir utan auðvitað athyglina á meðferð dýra í verskmiðjubúskap sem er nauðsynleg umræða.
(Uppskrift handa 4-5)
Gott er að bera réttinn fram með góðu salati og að mylja nokkrar lífrænar nachosflögur yfir réttinn setur aldeilis punktinn yfir i-ið. Það er líka gott að hafa guacamole með eða kúreka ýdífu eins og hún er stundum kölluð hér.(sjá uppskrift hér að neðan)
Það má alveg nota aðrar baunir í þennan rétt, ef þið eigið til í frysti eða eigið í dósum. Ég hef til dæmis notað svartar baunir, pinto baunir og adukibaunir. Þær passa allar mjög vel í allan mexíkanskan mat.
Maukið avakadó með töfrasprota eða stappið með gafli, kreystið lime safann yfir, bragðbætið með hvítlauk, salti og cumin.
Uppskrift frá heilsumamman.com