Hér er kominn einn gneistandi góður sem hressir, bætir og kætir.
Uppskriftin er fengin af vefsíðunni SimpleGreenSmoothies en möndlusmjörið og haframjölið setja forvitnilegan og freistandi blæ á þennan frískandi sumardrykk, sem er alveg óhætt að framreiða jafnt fyrir börn og fullorðna.
120 grömm ferskt grænkál
4 dl ósæt möndlumjólk
4 dl ber að eigin vali (frábært er að nota frosin ber í blönduna)
1 frosinn og niðursneiddur banani
2 msk möndlusmjör (má skipta út fyrir hnetusmjör)
½ dl fínmalað haframjöl
*Byrjið á því að setja grænkál og möndlumjólk í blandarann og blandið vel saman. Bætið að því loknu berjunum, möndlusmjörinu, banana og haframjöli út í og hrærið vel þar til allt er orðið mjúkt og jafnt. Hellið í upphá glös og njótið – tilvalið fyrir tvo!
Uppskrift af vef kvon.is